Velkomin á Tónmenntavefinn
Unnið hörðum höndum af því að koma öllu Flash efni yfir á Html5
Ágætu notendur Tónmenntavefsins!
Unnið hefur verið að því hörðum höndum að yfirfæra allt efni af Flash (Adobe) yfir á Html5. Eins og kunnugt er þá hættu vafrar að leyfa Macromedia Flash og hafði það áhrif á milljónir vefsíðna sem notuðust við þessa margmiðlunartækni.
Nú er all flest efni Tónmenntavefsins komið yfir á HTML5 og það þýðir að hægt er að spila allar keppnir og leiki á hvaða tæki sem er, síma, spjaldtölvu og borðtölvu.
Einhverjar örfáar skrár kunna að leynast inni á vefnum, sem er orðinn gríðarlega stór. Biðjum við notendur allra náðarsamlegast að láta okkur vita af þessum skrám og við förum í að laga þær hið snarasta.
með góðri kveðju
Stefán S. Stefánsson
forstöðumaður Tónmenntavefsins
Stýrðu flugvélinni inn í rétta svarið!
Þú sérð nótu skrifaða á nótnastreng. Nótnaheitið sem er hægra megin við myndina, er það rétt eða rangt! Stýrðu flugvélinni inn í rétta svarið
Hversu vel þekkir þú hin ýmsu slagverkshljóðfæri?
Spilaðu leikinn og láttu reyna á þekkingua!
Nýr þrautaleikur! Nefndu hljóðfærið
Þekkir þú hljóðfærin? Spilaðu spennandi leik!
Hljóðfærin streyma hjá! Smelltu á réttan svar-kassa fyrir neðan þrautina. Gangi þér vel!Keppnin um íslenska söngvara komin á HTML5
Höfum endurunnið hina vinsælu keppni um íslensku söngvarana.
Íslenskir söngvarar og söngkonur. Þú heyrir hljóðdæmi og sérð ljósmynd - Hver er söngvarinn? Skipum í lið og spreytum okkur.
Allar íslensku stjörnurnar úr heimi popps og rokktónlistar. Hentar öllum aldurshópum.
Keppnin um íslenska rappara er nú tilbúin til notkunar
Nú er spurningakeppnin um íslenska rapptónlist tilbúin til notkunar á öllum tækjum, símum og spjaldtölvum sem og venjulegum tölvum.
Allt um íslenska rapptónlist og rapptónlistarmenn. Hljóðdæmi, myndir og skemmtilegar spurningar. Hversu hipp og kúl ertu í rappheiminum á Íslandi?
Vinsamlegast athugið að í sumum textum er að finna gróft málfar og blótsyrði
Góða og gagnlega skemmtun
Áskrifendur nálgist leikinn hér!