Hvað þekkir þú af frægustu tónverkum sögunnar?
Við heyrum sýnishorn af mörgum frægustu og fegurstu tónverkum tónlistarsögunnar.
Það er þitt að geta hvert tónskáldið er.
Tilvalið til að kynnast nýjum tónverkum og uppgötva gimsteina tónbókmenntanna.
Góða og lærdómsríka skemmtun!
EUROVISION!
Spurt er út úr textum - Við heyrum hljóðdæmi - okkar er að svara.
Spennandi spurningakeppni fyrir allt að 10 lið í einu hér á Tónmenntavefnum.
Konur í íslenskri tónlist.
Hér er spurt um konur í íslenskri tónlist, flytjendur og tónskáld, úr klassískri tónlist og hryntónlist. Allar spurningar eru með hljóðdæmum, myndum og upplýsingum sem geta komið af stað umræðum.
Ekki er hægt að ætlast til að nemendur þekki alla þá sem spurt er um, en hér er kærkomið tækifæri til að vekja athygli á konum í tónlist og framlagi þeirra fyrr sem nú.
Hægt að skipta í mörg lið, velja persónur og skíra þær... sjón er sögu ríkari!
Hentar vel unglingadeildum og yngri stigum.
Unnið er að gagnagrunnstengingu keppninnar.
Rapp á Íslandi
Ný spurningakeppni fyrir skólastofuna og heimilið. Allt um íslenska rapptónlist og rapptónlistarmenn. Hljóðdæmi, myndir og skemmtilegar spurningar. Hversu hipp og kúl ertu í rappheiminum á Íslandi?
Hver er GKR og Birnir? Láttu reyna á það!
Skemmtileg og fjölbreytt keppni þar sem reynir á minni keppenda. Hvað manstu úr forkeppninni hér á Íslandi 2017?
Hvað hét nú aftur þetta lag... hver söng þetta lag.. hvað heitir þessi söngvari? Og margt fleira
Skipið í lið snúið lukkuhjólinu og keppum með heilasellunum!
Góða skemmtun!
Íslenskir söngvarar og söngkonur. Þú heyrir hljóðdæmi og sérð ljósmynd - Hver er söngvarinn? Skipaðu í lið, snúðu lukkuhjólinu
Allar nýjustu íslensku stjörnurnar ásamt nokkrum klassískum úr heimi popps og rokktónlistar. Hentar öllum aldurshópum.
Góða skemmtun
Hér er ekki um eiginlega spurningakeppni að ræða heldur er þetta efni til þess að vekja athygli nemenda á notkun tónlistar í kvikmyndum. Tónlist John Williams er hér notuð til að undirstrika ólíkar hljóðfærasamsetningar, hraða og styrkleika sinfóníuhljómsveitar. Hentar vel fyrir kennara að nota í kennslustund með tölvu eða skjávarpa. Tóndæmi, myndskeið og ríkulega skreyttar skýringamyndir.
Hentar einnig til sjálfnáms nemenda. Hentar sérstaklega vel Harry Potter aðdáendum.
Vekjum áhuga nemenda á tónlistinni í gegn um sterkasta miðil samtímans: Kvikmyndir
TÓNNMENNTAVEFURINN KYNNIR:
Kanntu að segja gleðileg jól á mörgum tungumálum?
Tungumál Evrópu eru afar fjölbreytt og ólík. Hér er þrautaleikur í að þekkja hvaða tungumál er á ferð. Tungumálin einskorðast við Evrópu.
Hvað þekkir þú af þessum tungumálum? Fræðandi og skemmtileg þraut.
Ein af stærstu ofurstjörnum poppheimsins í dag er kanadsíski söngvarinn Justin Bieber.
Hér er á ferðinni fróðleg keppni um allt sem viðkemur Justin. Myndir, hljóðdæmi og spurningar um feril Justins hafa vakið mikla hrifningu meðal hinna fjölmörgu aðdáenda hans hér á Íslandi. Sjón er sögu ríkari!
Ný og fróðleg spurningakeppni á Tónmenntavefnum
Veistu hvaða dansa á að dansa við hvers konar tónlist?
Reyndu á þekkingu þína: Hvort skal dansa vals, foxtrot eða diskó við tónlistina sem þú heyrir?
Fróðleiksmolar um dansana sem tengjast tónlistinni ásamt fjölda tóndæma.
Hentar flestum aldurshópum.
Hvað voru stjörnurnar að gera á árinu 2016? Nokkrar spurningar með myndum, hljóði og myndskeiðum. Hentar unglingadeildum og nemendum sem hlusta á vinsæla tónlist dagsins í dag vel. popp tónlist 2016
Með því að smella á litla ferninginn má stækka myndböndin. Notist af nemendum sjálfum eða með leiðbeinandi kennslu kennara. Námsmarkmið efnisins er að víkka sjóndeildarhring nemenda og kynna fyrir þeim
Tilvalið til að skapa umræður um listamenn, stíla og tónlist almennt.
Hvað veistu um eina vinsælustu hljómsveit allra tíma The Beatles?
Spennandi spurningakeppni sem velur úr gagnagrunni spurningar (tölfræðilega hægt að spila leikinn oft án þess að fá sömu spurningu)
Hljóðdæmi og myndir
Tilvalin leið til að kynna þessa frábæru tónlist fyrir ungu fólki sem ekki þekkir The Beatles
Hér er upplýsingasíða um þá félaga
Einhver áhrifamesti listamaður samtímans er bandaríska söngkonan og lagahöfundurinn Beyoncé Knowles. Hér er á ferðinni vönduð og margbreytileg spurningakeppni sem spannar ýmis atriði um þennan listamann.
Hentar vel öllum aðdáendum vinsællar tónlistar í dag sem og Beyoncé aðdáendum.
Hægt að skipa í allt að 10 lið - Breyta nöfnum og útliti hvers liðs
Spennandi keppni með spurningum úr undakeppnum hér heima og víðs vegar úr Evrópu. Þekkirðu lögin, kannastu við tungumálið, þekkir þú flytjendurna? Einnig nokkrar spurningar um sögu Eurovision.
Tilvalið fyrir Júró-Nörda á öllum aldri :)
Hæfileiki mannsins til að þekkja raddir er óvenjulegur. Við getum þekkt rödd einhvers sem er okkur nákominn úr fjölda annarra radda á örskotsstundu.
Þessi skemmtilegi leikur krefur nemendur til að hlusta gaumgæfilega og greina nafntogaða einstaklinga úr raunheimum og fantasíuheimum. Hentar nánast öllum aldursflokkum. Áætlaður tími er um 40 mínútur með liðavali og öðru tilheyrandi.
Góða og gagnlega skemmtun!
Spennandi keppni um íslenska tónlist dagsins í dag. Hljóðdæmi sem Þið eigið að reyna að þekkja. Athugið að þetta eru eingöngu íslenskir tónlistarmenn og konur.
Keppnin er í anda Viltu vinna milljón. Hentar flestum aldursstigum.